Pride
08.04.2008 10:24:16 / pride

1sta hlaup ársins

ég ákvað í gær að taka mig til og fara út að hlaupa í rigningunni. ég hafði ekki svona mikla hugmynd um samt að þetta yrði svona erfitt:O fékk illt í tennurnar og tanngóminn og verki í lungun:O!! ef það hefði ekki verið til staðar þá hefði þetta gengið mikið betur...en ég tók bara 15 mín hlaup, hljóp 2 km.
í dag ætla ég að skella mér í einhvern skemmtilegan tíma í ræktinni og svo taka hlaupið rólega:I úff þetta verður eitthvað strembið.

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 10:51:52 / pride

veikindi

kannast einhver við það þegar maður er ný búinn að segja við fólk: ég verð aldrei veik! þá verður maður veikur:O ég er búin að vera veik og veit að ég mun aldrei aftur tilkynna fólki að ég verði aldrei veik!

en ég bíð eftir að mér batni svo ég geti farið að fara út að hlaupa í góða veðrinu (not)!.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 16:40:45 / pride

bíð og bíð

þessa dagana er ég að bíða og bíða eftir að snjórinn og klakinn fari af hlaupabrautinni.  sýnist nú á veðurspánni að það verði einhverjar plús gráður út vikuna, er að vonast eftir að það verði gott hlaupafæri á fimmtudaginn til að ég geti teki Coopers testið á mér . er farið að kvíða smá fyrir þessu hehe...hræddum að vera í lélegast þol hópnum:$  en það kemur allt í ljós.

ég var að fjárfesta í mestu vídamíns og orku bombu sem ég veit um, það er duft sem er sett út í morgunsjeikinn og heitir Perfect food berry...grunar að þetta verði væntanlegt mun bráðlega i heilsubúðunum hérna heima...kemur í ljós. annars er mynd af dollunni í flokknum yfir það sem ég get ekki verið án;) 

ég fór á viktina í morgun og er búin að losna við 1.4 kg í viðbót og er rosa sátt með það, hef ekkert verið að reyna að léttast meira en líkaminn er eitthvað að tjá sig um að hann vilji fara aðeins neðar, alltilæ með það svosem. vil ekki verða léttari en samt 57kg, er samt mjög lítil eða 164cm! en leið og ég byrja að hlaupa svaka oft þá hljóta einhver kg að bætast við.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 12:37:52 / pride

Mætt á nýja síðu með nýjum áætlunum:)

rétt að láta vita af mér, er að koma síðunni í gang.

keypti mér ræktarkort í desember og hef verið hræðilega ódugleg að nota það, hef ákveðið þar sem ég er ekki mikil tækjamanneskja að drýfa mig í opna tíma frekar og nota kortið í það, fer í kvöld.  en svo fékk ég ógeðslega flotta rándýra Acer hlaupaskó í jólagjöf og þarf að fara að nota þá! í þar seinustu viku bjóst ég ekki við að það myndi frysta neitt meira í vetur og var komin í gírinn til að fara út að hlaupa en svo frysti! alveg típískt...en ég bíð bara eftir að það þyðni:) 

ég ætla rólega af stað því ég er ekki í neinu formi og hef aldrei verið, ekki vil ég nú gefast upp. svo ég hef prentað út Coopers hlaupaprófið sem er á Doktor.is og ætla mér að testa í hvernig hlaupaformi ég er, er komin með græurnar í það svo núna er bara að bíða eftir að frostið gefi eftir:)  fann mér Pedo-meter sem mamma á en hefur aldrei notað sem mun mæla km og tímann fyrir mig.

en ég ætla ekki að hafa það lengra í bili, ætla að fara í einn blogghring, hef verið að fylgjast með ykkur seinasta hálfa árið síðan ég hætti að blogga á harkansex;) 

- mætti líka einhver commenta á mig hvar ég finn tenglana á þessu nýja bloggcentral dæmi:I

» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 4763
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 535 dögum
ég tek þátt í Maraþoni Glitnis:) - 10 km
Þínir flokkar